Bókfærð dreifing kostnaðar varanlegra rekstrarfjármuna yfir áætlaðan nýtingartíma þeirra. Afskriftir sýna því ekki nýtt útstreymi handbærs fjár á árinu heldur hvernig fjárfesting er færð til kostnaðar yfir tíma.
Heimild: Skýring í mælaborði
Útsvar, fasteignaskattur, framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, lóðarleiga, þjónustutekjur og aðrar tekjur sem teljast að jafnaði til reglulegrar starfsemi sveitarfélaga.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Laun og launatengd gjöld, þ.m.t. breyting á lífeyrisskuldbindingum og allur annar rekstrarkostnaður að undanskildum afskriftum.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Reglulegar tekjur að frádregnum rekstrargjöldum. Framlegð sýnir því hvað stendur eftir af reglulegum tekjum áður en tekið er tillit til afskrifta og fjármagnsliða.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Þjónusta sem er í mælaborðinu flokkuð sem opinber grunnþjónusta eða nátengd forsenda hennar. Í þessari skilgreiningu nær það einkum til fræðslu- og uppeldismála, félagsþjónustu, heilbrigðismála, brunamála og almannavarna, hreinlætismála, skipulags- og byggingarmála og umferðar- og samgöngumála. Þessi skilgreining byggir á drögum um skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu.
Heimild: Drög um skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu
Samanlögð heildarútgjöld til rekstrar vegna A- og B-hluta í reikningsskilum séu á hverju þriggja ára tímabili ekki hærri en sem nemur samanlögðum reglulegum tekjum.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Rekstrargjöld að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Reglulegar tekjur að frádregnum heildarútgjöldum. Rekstrarniðurstaða sýnir því afkomu reglulegs rekstrar eftir að tekið hefur verið tillit til afskrifta og fjármagnsliða.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Tekjur og gjöld sem ekki falla til af reglulegri starfsemi sveitarfélaga.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Rekstrarniðurstaða að teknu tilliti til óreglulegra liða.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Heildarskuldir og skuldbindingar A- og B-hluta í reikningsskilum séu ekki hærri en nemur 150% af reglulegum tekjum.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Samtala skuldbindinga, langtímaskulda og skammtímaskulda, eins og fram kemur í efnahagsreikningi.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Heildarskuldir og skuldbindingar í hlutfalli við reglulegar tekjur, án tillits til útreiknings skv. 14. gr.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Skuldahlutfall að teknu tilliti til leiðréttinga samkvæmt 14. gr. reglugerðarinnar, þar sem tilteknir frádráttar- og undantekningarliðir eru teknir með í reikninginn.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Veltufjármunir að frádregnum skammtímaskuldum samkvæmt efnahagsreikningi.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Áfallnir vextir, verðbætur og gengismunur.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Peningaleg staða sýnir nettó stöðu peningalegra eigna gagnvart skuldum og skuldbindingum. Hún er skilgreind út frá heildarskuldum og skuldbindingum annars vegar og peningalegum eignum hins vegar, þ.e. handbæru fé, kröfum og öðrum eignum sem ætlað er að breyta í handbært fé. Í mælaborðinu reiknum við hana sem samanlagðar peningalegar eignir að frádregnum skuldum og skuldbindingum, nánar tiltekið handbært fé, skammtímakröfur, næsta árs afborganir krafna og langtímakröfur, að meðtöldum kröfum á eigin fyrirtæki, að frádregnum heildarskuldum og skuldbindingum.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Skuldir sem bera fasta eða breytilega vexti.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012
Hlutfallið á milli veltufjármuna og skammtímaskulda. Lykiltalan sýnir hversu vel skammtímaeignir standa undir skammtímaskuldum.
Heimild: Reglugerð nr. 502/2012